Wednesday, September 12, 2007
Á föstudaginn verð ég 22gja ára gamall. Þá ætla ég að halda stórt afmælispartí og er ég búinn að bjóða yfir 100 manns held ég. Það væri mér ómetanlegt ef ég myndi sjá ykkur sem flest og er ykkur að sjálfsögðu öllum boðið. Það er líka í góðu lagi ef ykkur langar að taka með ykkur vini, maka eða aðra vandamenn. Partíið verður í salnum í Kennó og byrjar kl 21:30 og mun standa rétt yfir miðnætti. Boðið verður upp á lifandi tónlist og ýmis skemmtiatriði þannig að það er leikur að koma tímanlega. Boðið verður upp á bollu og svona en þar sem þetta er fjölmennt partí að þá er ekki vitlaust að þið komið með einhverjar veigar séu þið í þeim gírnum ;)
Hlakka til að sjá ykkur sem flest og btw. Það er allt of langt síðan við höfum gert eitthvað saman ...
Kv. Daníel Geir Moritz