Tuesday, March 6, 2007
jájá... þið bjuggust ekki við tíðindunum svona snemma:)En upphitunarpartý verður hjá henni MARÍU RÖGNU OKKAR!!!
og hefst gleðin hjá henni kl :18:00... og þið hafið bara upp á henni til að fá heimilisfangið!:)
Það er eins gott að allir verði klárir með að koma, þar sem það var pínu snúið upp á hendina á henni til að hafa þetta;)
En einnig eru allir beðnir um að fita á sér rassana eða koma með stóla með sér, þar sem þetta er frekar lítil íbúð með takmörkuðu stólaplássi:) og já, til að fita rassana enn meira, þá skulum við líka koma með smá nammi eða snakk í púkk!!!:)
ég skal kannski luma á leik...hmmm;)
HREIN GLEÐI!!!!
Jei hlakka svooo til.... Ég og minn maður mætum galvösk til Mary kl. 18
JEIJJJ! hvað ég er glöð yfir að sjá að það ætla einhverjir að koma:)
...það hljóta að vera fleiri... koma svo!!:)
eru ekki allir að springa úr spenningi!??:)
Jessöríbob..... ég mun mæta galvaskur á svæðið og að sjálfsögðu kemur betr... ja segjum hinn helmingurinn með líka... tjekk Jón +1 ;)
Hæ hæ ... að sjálfsögðu mætir sykurpúðinn... Það væri sko ekkert teiti nema það sé smá sykur á svæðinu. Aldrei að vita nema að ég brjótist út í Fjölla, minn gamla vin. Það má sem sé skrá mig niður og +einn.
Ein forvitni ætlum við að hafa rútu að Gullhömrum?.. Ég er svo metravilt að ég veit ekki hvort þetta er í göngufæri eður ei. Einhver var að segja að það mætti kannski biða B bekkinn um að deila rútu saman...
Ps. Íris ég bíð mig fram við að taka á móti barninu ef svo ber undir.. þarf maður ekki bara hvítartuskur og soðið vatn?
Jú jú, auðvitað mætir maður í upphitunarhitting og á þessaða margrómuðu árshátíð. Vá hvað ég ætla þokkalega að fá ábót á steikina takk.. nammi namm!! Ég mæti kona einsömul í þetta sinn... en hver veit, the night is young, svo kannski ég hössli feitt og fari kona tvísömul heim ;o)
Sjáumst gott fólk!!!
Það er svo sem hægt að labba þetta ef veðrið er gott ;) Ætli þetta séu ekki 10 mín tops sem er ágætt ef maður er með bjór við hönd ;)
María
Hellú!
Auðvitað mætir frú Ragna ásamt fylgdarliði á svæðið. Búin að senda manninn á undirbúningsnámskeið, áfallahjálpin frá því síðast loksins að skila sér.
Skál í boðinu,
Ragna+1.
Ég mæti kona einsömul (alla vega síðast þegar ég vissi) ætla að hössla með Boggu (ætli Valur viti að ég er að fara á árshátíð..kemur í ljós)
Sé ykkur hjá Maríu
Brynja
Leave your response