Wednesday, February 28, 2007
Mikið er ég ánægð að við skulum vera orðin sameinuð á ný eftir allt of langan tíma. Ykkar hefur verið sárlega saknað.Mig langar að koma fram þakklæti fyrir allar hlýju kveðjurnar frá ykkur í tilefni komu Elínar Óskar í þennan heim, og svo auðvitað gjafanna (barnabiblía & leikfang). Dagmar Lilja var líka hrikalega ánægð meðsippubandið sem henni var fært um leið :-)
Mig dauðlangar að sletta úr klaufunum með ykkur á árshátíðinni, en því miður verða bobbingarnir að vera heima...heheh.. en ég vona bara að einhverjir sjái sér fært um að skreppa út í einhvern bílinn (Steinunnar eða Maríu..man ekki hvor bíllinn það var:-), sötra delissíus áfenga drykki og fara í sannleikann og kontor. Alveg eins og gelgjur úr gaggó..jeij!
Bíð þó spenntust yfir sögum af Danna boy..heheh...hann átti amk bestu tilþrifin í fyrra remember...!!??
Góða skemmtun öll sömul og ég hlakka til að sjá ykkur fljótlega. By the way..."brjóttu legg" Danny boy..við styðjum þið öll sem eitt! Segðu bara nokkrar sgur af sjálfum þér og þá ættir þú að vera nokkuð safe!
Over...
Íris húsfreyja...(já, og fjarnemi...alveg rétt)
Þeir sem eru pottþétt með eru eftirfarandi
Halldóra, Guðrún, Kristín og Jón
Þannig að það er útlit fyrir frábæra mætingu...
Leave your response